Persónuvernd

Persónuverndarstefna Verkkerfis

Síðast uppfært: 13. maí 2026

Verkkerfi er rekið af Ordex á Íslandi. Við viljum fara vel með þau gögn sem þú treystir okkur fyrir. Hér útskýrum við í stuttu máli hvaða upplýsingum við söfnum, hvers vegna og hvernig þú hefur stjórn á þeim.

Hvaða upplýsingum við söfnum

Þegar þú stofnar aðgang og notar Verkkerfi getum við safnað:

  • Notendaupplýsingum: nafni, netfangi, símanúmeri og lykilorði (dulkóðað).
  • Fyrirtækjaupplýsingum: heiti, kennitölu og tengiliðum vinnurýmis.
  • Verkefnagögnum: verkum, verkdagbókum, athugasemdum, myndum, skjölum og verkferlum sem þú vistar í kerfinu.
  • Tæknigögnum: IP-tölu, vafra, tæki og tímasetningum innskráninga til að tryggja öryggi.

Hvernig við notum gögnin

  • Til að veita þjónustuna — verkefnastýringu, verkdagbækur, myndir og fyrirtækjagögn.
  • Til að halda utan um áskriftir, reikninga og aðgang að kerfinu.
  • Til að bæta kerfið, leysa villur og veita aðstoð þegar þú leitar til okkar.
  • Til að senda mikilvægar tilkynningar um aðganginn þinn eða þjónustuna.

Geymsla og öryggi gagna

Gögnin þín eru geymd á öruggum netþjónum innan EES. Við notum örugga dulkóðun (HTTPS/TLS) og aðgangsstýringu þannig að aðeins þú og þeir sem þú býður inn í þitt vinnurými hafið aðgang að þeim. Starfsfólk okkar fer einungis í gögn þegar þess er þörf vegna tækniaðstoðar eða lögbundinna skyldna.

Myndir, skjöl og önnur gögn sem notendur vista í kerfinu eru meðhöndluð sem trúnaðargögn og eru aðeins aðgengileg þeim notendum sem hafa heimild innan viðkomandi vinnurýmis, nema lög kveði á um annað.

Admin aðgangur

Innan vinnurýmis ráða eigendur og stjórnendur (admin) því hverjir hafa aðgang og hvaða réttindi þeir hafa. Það er á ábyrgð fyrirtækisins að úthluta aðgangi rétt og fjarlægja notendur sem ekki eiga lengur að hafa aðgang.

Cookies og einföld vefmæling

Við notum nauðsynlegar smákökur (cookies) til að halda þér innskráðum og muna stillingar. Til viðbótar getum við notað einfalda vefmælingu til að sjá hvaða síður eru heimsóttar og bæta þannig upplifunina. Við seljum aldrei gögn til þriðja aðila í auglýsingaskyni.

Þriðju aðilar

Til að reka kerfið nýtum við áreiðanlega þjónustuaðila fyrir hýsingu, gagnagrunn, tölvupóst og greiðslulausnir. Þeir vinna gögn fyrir okkar hönd samkvæmt vinnsluskilmálum og hafa ekki heimild til að nota þau í eigin þágu.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að:

  • Fá afrit af þeim gögnum sem við geymum um þig.
  • Fá ranglegar upplýsingar leiðréttar.
  • Láta eyða aðgangi þínum og tengdum persónuupplýsingum.
  • Draga til baka samþykki fyrir vinnslu þegar það á við.

Sendu okkur línu á info@verkkerfi.is og við svörum eins fljótt og við getum.

Geymslutími

Við geymum gögn á meðan aðgangur er virkur. Þegar áskrift er sagt upp eyðum við gögnum innan eðlilegs tíma, nema lög skyldi okkur til að geyma tilteknar upplýsingar lengur (t.d. bókhaldsgögn).

Breytingar á stefnunni

Við getum uppfært þessa stefnu þegar kerfið þróast. Ef breytingar eru veigamiklar látum við þig vita með tölvupósti eða skilaboðum innan kerfisins.

Hafðu samband

Ordex
Ísland
info@verkkerfi.is