Skilmálar
Notendaskilmálar Verkkerfis
Síðast uppfært: 13. maí 2026
Þessir skilmálar gilda um notkun á Verkkerfi sem rekið er af Ordex ehf. á Íslandi. Með því að stofna aðgang eða nota kerfið samþykkir þú skilmálana hér að neðan.
Þjónustan
Verkkerfi er vefkerfi fyrir verkefnastýringu, verkdagbækur, myndir, fyrirtækjagögn og verkferla. Þjónustan er ætluð einstaklingum, verktökum og minni fyrirtækjum sem vilja halda utan um vinnu sína á einum stað.
Notendaaðgangar
- Þú berð ábyrgð á að upplýsingar í aðganginum þínum séu réttar og uppfærðar.
- Lykilorð eru persónuleg og óheimilt er að deila þeim með öðrum.
- Eigendur vinnurýma (admin) ákveða hverjir hafa aðgang og hvaða réttindi.
- Tilkynna skal okkur ef grunur leikur á að einhver annar hafi komist inn á aðganginn.
Áskriftir og greiðslur
- Verkkerfi býður upp á prufutímabil og mánaðarlegar áskriftir samkvæmt verðskrá á síðunni.
- Áskrift endurnýjast sjálfvirkt þar til henni er sagt upp.
- Þú getur sagt upp áskriftinni hvenær sem er og hún lýkur í lok yfirstandandi tímabils.
- Greitt gjald er almennt ekki endurgreitt nema í tilvikum sem lög kveða á um.
- Verð geta breyst með hæfilegum fyrirvara og við látum þig vita með tölvupósti.
Ábyrgð notenda
Þegar þú notar Verkkerfi samþykkir þú að:
- Setja ekki inn ólöglegt efni eða gögn sem þú hefur ekki heimild til að nota.
- Reyna ekki að brjóta öryggi kerfisins eða trufla þjónustu fyrir aðra notendur.
- Bera ábyrgð á þeim gögnum sem þú og þitt teymi setur inn í kerfið.
- Fara að íslenskum lögum, m.a. um persónuvernd og bókhald þegar það á við.
Viðkomandi fyrirtæki eða vinnurými ber sjálft ábyrgð á þeim upplýsingum, myndum, skjölum og verkferlum sem vistaðir eru í kerfinu, sem og úthlutun aðganga til notenda.
Gögnin þín
Þú átt þín gögn. Við geymum þau fyrir þig á meðan aðgangur er virkur og þú getur óskað eftir útflutningi eða eyðingu hvenær sem er. Nánar er fjallað um meðhöndlun gagna í Persónuverndarstefnu.
Aðgengi og rekstrarstöðvun
Við gerum okkar besta til að halda Verkkerfi aðgengilegu allan sólarhringinn, en getum ekki ábyrgst 100% uppitíma. Stundum þarf að framkvæma viðhald eða uppfærslur sem geta haft tímabundin áhrif á aðgengi.
Takmörkun ábyrgðar
Verkkerfi er afhent „eins og það er“. Ordex ehf. ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, tekjutapi, gagnatapi eða öðru afleiddu tjóni sem rekja má til notkunar á kerfinu, nema um sé að ræða ásetning eða stórkostlegt gáleysi. Heildarábyrgð okkar gagnvart notanda takmarkast við þá fjárhæð sem viðkomandi hefur greitt fyrir áskrift síðustu 12 mánuði.
Uppsögn
Við áskiljum okkur rétt til að loka aðgangi sem brýtur þessa skilmála, án endurgreiðslu. Þú getur sjálf/sjálfur sagt upp áskriftinni hvenær sem er innan kerfisins eða með því að hafa samband við okkur.
Breytingar á skilmálum
Við getum uppfært þessa skilmála þegar þjónustan þróast. Veigamiklar breytingar tilkynnum við með tölvupósti eða skilaboðum í kerfinu áður en þær taka gildi.
Lögsaga
Um þessa skilmála gilda íslensk lög. Komi upp ágreiningur sem ekki tekst að leysa með samtali skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hafðu samband
Ordex ehf., Ísland.
Tölvupóstur: info@verkkerfi.is
